Guðbjörg
My Space
14.06.2006 00:31:08 / gb.is

Sorgastundir!!!

Jæja þá er mín bara að yfirgefa klakan og mun ég sakna ykkar allra ekkert smá mikið:cry: Alir að hugsa til mín á Þjóðhátíð...en þið vitið það að það er enginn þjóðhátíð þegar ég er ekki á staðnum8) þannig ég er ekki að treysta á það að það verði gaman á þjóðhátíð þetta árið;)...en engar áhyggjur...ég fer á Þjóðhátíð á næsta ári og þá verður sko gaman:P

En ég og Skutla verðum saman með síðu á meðan við erum úti, þannig ég ætla í smá pásu með þessa síðu...í sex mánuði. Kíkjið á nýju síðuna okkar og fylgist með ferðum okkar á Spáni.

                    www.123.is/senjoritas

Sjáumst síðan aftur hress og kát í desember.

bæ bæ.

P.S. ég er búin að setja helling af myndum inná spaceið mitt en myndirnar af sjómannahelginni eru á nýju síðunni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 12:21:07 / gb.is

Sjómannahelgin :)

Jæja þá er ég komin heim frá Ameríkunni og var það ekkert smá gaman, nema kannski þegar ég fékk gubbupestina á föstudeginum þannig ég hafði bara laugardaginn til að versla...þannig það var ekki verslað mikið því það er alveg óbærilega mikið af búðum þarna.

Sjómannahelgin er nú gengin í garð og var bryggjuballið í gærkveldi. Paparnir voru að spila, er ég nú ekkert alveg að fíla þá en það var gaman að hitta allt fólkið. Eftir það var farið uppeftir á Kaffi Grindavík til hans Helga og er þetta ekkert smá flott hjá honum stráknum. Voru þar Kalli Bjarni og Grétar að spila og enginn smá stemmari í öllu fólkinu.

Í kvöld verður farið til hennar Ágústu í tvítugsafmæli og síðan eftir það veit maður ekki, það er allavena brjálað um að vera. Það verða fjögur böll í gangi og getur maður keypt einn miða á öll böllinn fyrir 2000 kr...ekki slæmt! Maður fær bara armband og svo verður tveggjahæða rúta sem að keyrir á milli. Það er sko ekkert kjaftæði hérna í Grindavíkinni...bara hafa þetta almennilegt eða ekki neitt:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 02:03:37 / gb.is

USA Baby!!!

Er að fara til San Francisco á morgun og kem heim á sunnudaginn...get ekki beðið, hef nefnilega aldrei farið til Bandaríkjanna. Allavena, skemmtið þið ykkur hér heima á klakanum...ég veit allavena að ég á eftir að gera það í Ameríkunni :)

See ya

:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 22:03:06 / gb.is

Útskrifuð!!!!

Ohhh síðasti laugardagur var bara skemmtilegur og það virtist aldrei koma að honum...síðasta vika ætlaði aldrei að líða.:frown:

Ég byrjaði að vakna kl: 09:00 og fara í sturtu og gera mig sæta, síðan mætti ég uppí skóla kl: 11:30 og hékk þar í tvo og hálfan tíma, svo kl: 14:00 byrjaði athöfnin. Óli skóli var eitthvað voða stressaður greyið því hann var bara í ruglinu. Hann ruglaði saman nöfnum og mismælti sig á fullu. Þegar Gréta Mar (ástarfleysgella) var að taka á móti prófskírteininu sína þá sagði hann fyrst "Grétar Mar" og síðan "Gréta Mar Jónsson" ? ekki alveg að ganga...hann varð líka eldrauður í framan.:^) Síðan í ræðunni þá fór hann eitthvað að tala um hvað það væri dýrt fyrir skólann þegar nemendur falla og að fleiri strákar falla heldur en stelpur...?...hvað í andskotanum kemur það okkur við, við erum að útskrifast!? Eins og ég sagði, þá var Óli skóli bara í bullinu.

Eftir athöfnina fórum við svo beint uppí Mosfellssveit að heimsækja ömmu, síðan kom ég aftur heim að ná í frænku mína og við fórum aftur í Keflavík í myndatöku og síðan brunað heim að taka á móti gestum...brjálað að gera. Ég var ekkert með einhverja stórveislu, bara amma og afi og nokkrir í viðbót, síðan um kvöldið komu stelpurnar...og það var bara skemmtilegt. Um svona eitt leitið fórum við Rakel og Begga í Kef heim til Erlu Lind, átti að vera aðalspartý þar en það voru svo bara nokkrir úr aðlinum...varð pínu fyrir vonbrigðum því ég var að beila á balli með Magna heima, en þetta varð síðan bara helvíti skemmtilegt kvöld. Það var helling af fólki niður í bæ, það var troðið á hápunktinum...biðröð inn, var bara hleyft inn í hollum, en á Traffic var enginn? ég held að þessi staður sé gjörsamlega að skíta á sig.

Horfði á ungfrú Ísland í gær og hún Sif vann...datt það í hug að annaðhvort hún eða ungfrú Reykjavík myndi vinna. En það fyndnasta heimi skeði þegar hún Unnur Birna Bókstaflega flaug á hausinn...hún misteig sig ekkert pínu, nei nei...hún hrundi beint á smettið...ég hélt að ég myndi deyja úr hlátri.:lol: Sérstaklega útaf því hún stóð þarna með Miss World kórónuna á hausnum...sem rúllaði síðan eftir gólfinu...og var eitthvað að þakka öllum innilega fyrir frá hjartanu fyrir stuðningin og svo hrinur hún á nefið. Síðan það besta var í fréttunum í kvöld þegar þeir síndu þetta í slómósion. Bara snilld! Hún Gréta Mar kom mér mikið á óvart, hún var bara virkilega flott þarna í geggjuðum kjól...hélt að hún myndi allavena vera í fimm efstu...fannst hún mikið flottari en hinar gellurnar sem voru í fjórða og fimmta.

Allavena, nenni ekki að segja meira.

Ble ble.

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 22:05:50 / gb.is

Gleðitímar!!!

Jæja önnur vika liðin og það stittist óðfluga í útskrift...jesus bobby!!! Ég hringdi í Gullu í dag og fékk að vita að ég hafi náð öllu þannig ég er pott þétt að útskrifast næsta laugardag:haha: Ég ætla ekki að vera með neina stórveislu bara bjóða nokkrum stelpum heim um kvöldið í bjór. Svo er líka júróvision um kvöldið þannig það verður fylgst með því ef að Sylvía kemst áfram. Get ekki beðið, þetta á eftri að verða geggjað skemmtilegt kvöld:)

Við stelpurnar fórum á djammið í bænum á laugardaginn, við Begga, Rakel, Ella, Hrafnhildur, Hildur, Rebekka, Thelma og Gugga. Við byrjuðum heima hjá Guggu og svo var haldið niður í bæ. Það var gjörsamlega troðið niður bæ og endalausar biðraðir, greinilega allir búnir í prófunum. Við byrjuðum að fara á Prikið og þar var ekkert nema kanar og svertingjar og gellur sem voru að missa sig í rassadönsunum. Það var ein gella með heila ritgerð á bakinu á sér (tatoo þá) og var ekkert smá að sýna það, mér fannst hún frekar sorgleg með þetta ljóta brennimerki. Við færðum yfir á Pravda og það var alltof mikið af fólki þarna. Thelma ætlaði að fá sér í glas en hætti svo við það þannig ég sagðist ætla að fá far með henni, þegar við vorum að fara þurftum við að auðvitað að taka taxa heim til Guggu því bíllin hennar var þar en það var glæta að við hefðum haft þolinmæði í það því það var taxaröð dauðans. Þegar við vorum að labba að taxaröðinni réttu einhverjir gaurar okkur dreifimiði um helgar skutlar og gat maður keypt miða fyrir utan stjórnarráðið, og við alveg greinilega frá suðurnesjum hófum leitina að stjórnarráðinu, þegar við vorum búnar að leita í dágóða stund fórum að spyrja fólk hvar í andskotanum þetta væri...fólk hló bara að okkur og sagði okkur það...þá komumst við að því að stjórnarráðið væri þar sem gaurarnir réttu okkur dreifimiðar, he he engir smá miklir bjánar:lol: ég nennti ekki að labba til baka þannig ég stoppaði bara einhvern bíl sem var að keyra þarna framhjá og spurði hann um far, Thelma var ekkert hrifin af þessu...fannst hann svo nauðgaralegur, þetta var einhver útlendingur og þegar við vorum svona hálfnaðar þá sagði hann að hann ynni sem taxi um helgar og var eitthvað að ætlast að við myndum borga...glætan að ég væri að fara að borga. Þegar við komum heim til Guggu stukku við útur bílnum og hann var eitthvað að segja " you said you would pay me" ég sagði nei við þurftum ekki að borga því hann væri ekki á taxa. Gaurinn drap mig næstum með augunum og sagði í fýlu tón "ok" og brunaði í burtu. Mér fannst þetta bara fyndið, Thelma hafði áhyggjur af því að hann myndi snúa við og keyra á okkur he he ég hló að þessu alla leiðina í Kef. Þegar við komum í Kef var stemmari í fólki og bara helvíti gaman. Þetta var bara virkilega skemmtilegt kvöld:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 02:38:16 / gb.is

Próf!!!!

Christ!!!! prófin í gangi og ég er ekki alveg að nenna þessu, ég fer samt bara í tvö próf en ég er samt ekki að nenna.  Það er búið að vera alltof gott veður úti sem að er stranlega bannað á svona stundum...Lónið var bókstaflega að öskra á mig yfir helgina að kíkja í heimsókn en maður þurfti að vera samviskusamur að hanga inni í þessu góða veðri :( Ég er búin í prófunum á föstudaginn og þá verður sko djammað! Síðan helgina eftir það er ég að útskrifast og það er júróvision þannig það verður bara gaman. Ég ætla ekki að vera með neina stórveislu, ég ætla bara að bjóða nokkrum stelpum heim í bjór og svo verður haldið útá lífið. Maður er alveg í vandræðum með hvað maður á að gera eftir júróvision því Magni baby er á Salthúsinu og síðan er hellingur af útskriftarpartýum í Kef. ég held að ég verði ekkert að ákveða neitt, bara bíða og sjá hverju ég verð stemmara fyrir.

Þangað til seinna :)

P.S. Fólk sem að á eftir að hitta mig laugardaginn 20. maí, þá er skylda að kyssa mig til hamingju!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:45:33 / gb.is

Myndir

Ég er búin að setja inn fleiri myndir á spaceið mitt og mun núna alltaf bara setja myndirnar mínar þangað inn :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 17:18:21 / gb.is

Nálgast í brottför...svona um einn og hálfur mánuður!!

Vá hvað það var gaman síðustu helgi! Ég byrjaði á fimmtudeginum að fara með útskriftanemunum að vekja kennarana og var það ekkert smá gaman. Það var farið um 01:00 og lagt í bæinn þar sem við vöktum Hans Uwe, Gunnlaug, Huldu og Svein sem að skellti á nefið á okkur, vissi ekki hvað var í gangi þegar að um 20 manns safnaðist saman fyrir utan hjá honum syngjandi. Ég var komin heim kl: 06:00 og nennti ekki að vakna í dimmeteringuna. Ég náði einhverneginn að drösla mér samt fram úr og fara í skólann með erfiðismunum.

Þegar ég kom heim þá lagði ég mig í fjóra tíma og síðan var lagt af stað í síðustu kvöldmáltíðina. Það munaði litlu að ég hefði ekki farið því ég var að deyja úr þreytu og í engu stuði, en sem betur fer gerði ég það ekki því það var svo mikil stemming í fólkinu að maður gat ekki annað en farið í gott skap:lol: Maturinn var ekkert smá góður, það var Mexikanst, og ekki voru skemmtiatriðin síðri því hún Gulla kom fram sem Sylvía nótt og bræðurnir Haukur og Ægir sem Hommi og Nammi. Ég hélt að ég deyja úr hlátri af Gullu með bleiku fjaðrirnar sínar og Hauki og Ægi í boxer með frá hnepptar skyrtur, sveiflandi bumbunum upp í loftið:lol: Eftir það var bara haldið á dansgólfið, þar sem Ægir Karl og Atli misstu sig í snúningunum og um 2 var síðan haldið niður í bæ. Ég veit ekki hvenær ég kom heim en þetta var ekkert smá gaman og ekki hefði ég viljað að missa þessu. Ég held að kennaranir eigi aldrei eftir að toppa þetta atriði á næstu kvöldmáltíðum sem eiga eftri að koma. Ég tók ekki margar myndir...fékk lánaða vélina hjá Skutlu sem sagði að það væri alveg nóg batterý og svo þegar ég kveikti á henni í matnum þá var hún batterýslaus:frown:

Á laugardeginum fórum ég og Rut á Splash og verð ég bara að segja það að ég hef ekki skemmt mér svona vel í Kef í langan tíma. Það var gjörsamlega troðið og þegar maður labbaði inn gekk maður bara á vegg af hita og svita. Við fórum þangað um 12 og vorum komnar heim kl: 07:00 um morguninn. Það var dansað svo mikið að þegar ég kom heim var ég með hjartslátt í fótunum...ekki þægilegt:!: Ég og Rut gjörsamlega misstum okkur í myndatökunum, við tókum eitthvað um 250 myndir, þannig það er nóg að skoða. En myndirnar af þessu öllu koma inn seinna því picture trailið er búið að vera voða leiðinlegt, var bara að klára að setja inn myndirnar af stelpupartýinu.

Allavena þá nenni ég ekki að skrifa meira, þannig ég bið að heilsa ykkur þarna úti.

Ble Ble:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 15:24:12 / gb.is

Á algjörum Bömmer :(

Hvaða voða sirkus dæmi er þetta eiginlega? En allavena, þegar ég var að djamma um páska helgina og þá gerðist þá leiðinlegi atburður að bandið á myndavélinni minni slitnaði, vélinn í jörðina og nú get ég ekki kveikt á henni :( Ekkert smá Sár. Þannig síðustu helgi gat ég ekki tekið neinar myndir, en Rut var með sína vél svo að það er spurning hvort að maður fái ekki bara myndirnar hjá henni. Var annars á Stuðmanna balli síðustu helgi, helvíti gaman, þeir klikka aldrei. Byrjaði á að fara í pottinn hjá Rut og svo færðum við okkur yfir til Hrafnhildar og Gunna í staffapartý hjá Mamma Mía. Bara nokkuð vel heppnað kvöld.

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 23:49:22 / gb.is

it wasn´t me!!

Vá ég er búin að vera ógeð löt í þessu blog veseni en allavena þá er komin staðfest dagsetning á hvenær ég og Rut yfirgefum klakann. Þann 15. júní munum við Skutla flytja til Spánar í hálft ár en svo er bara spurning hvort maður verði lengur. Við erum nefnilega að fara í skóla og læra spænsku. Við byrjum í Granada í þrjá mánuði sem er svona klukkutíma frá Costa Del Sol og síðan ætlum við að færa okkur yfir til Barcelona og klára dvölina okkar þar...þannig ef að fólk á ferð um Spán í ár þá eruð þið velkomin að koma og kíkja á okkur :)

Síðustu helgi skellti ég mér á stelpukvöld á Traffic, ég var edrú (ótrúlega dugleg ;)) en náði samt að skemmta mér vel. Ég fór með Boggu, Tinnu og Ingu og var 60´s - 80´s þemi. Þær gerðu sig allar upp og voru vel skrautlegar, ekki ég, ég nennti því ekki, og þegar við mættum voru þær einu gellurnar svona klæddar, bara fyndið :lol: Það var verðlaun fyrir besta búninginn þannig það var bara spurning hver að þeim myndi fá hana og var það Bogga, fékk hún mjög flottan titrara, ullandi björn eða eitthvað he he en stelpunum fannst það voðalega fyndið að láta mig bera olíu á einn stripparan, mér leið ekkert smá kjánalega:^). Inga var svo æst að hún sprautaði olíu yfir allt hægri lærið á mér, þannig ég var með stóran blett á buxunum allt kvöldið. He he gaman að henni. Við hlógum bara að þessu öllusaman og skemmtum okku konunglega restina af kvöldinu. Ég setti inn nokkur highlights kvöldsins en restin að myndunum koma inn seinna.

he he geggjuð mynd...sjá svipinn á Boggu:lol:

leikfangið sem Bogga fékk í verðlaun

The Ice Stallions:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:02:40 / gb.is

Djamm Djamm :)

Hér sit ég heima uppí sófa, að leka niður af þreytu og jafna mig eftir svakalega helgi.

Á föstudaginn fór ég í afmæli til Guðna, orðinn 21 árs kallinn...á reyndar afmæli í dag. Það var heima hjá systir hans í krúttlegasta húsi sem ég hef á ævinni séð. Þar var bara chillað og haft það næs, drukkið bjór og spjallað saman. Um tvö leytið var síðan farið niður í bæ, það var ekki margt um manninn en maður náði samt að skemmta sér konunglega.

Á laugardaginn byrjuðum ég og Skutla að fara í innflutningspartý hjá Birgittu í Kef þar sem bolla var í boði með helling af ávöxtum í, bara helvíti góð. Síðan var skellt sér í Reykjavíkina heim til hennar Boggu í flottustu íbúð sem ég hef séð. Við vorum þar í smá tíma, ég, Rut, Bogga, Sigrún, Sigga og einhverjar tvær stelpur og síðan var haldið af stað niður í bæ. Það var farið beint niður á Hverfis og vorum við þar alla nóttina ótrúlegt en satt. Þar vorum við vel skrautlegar og vel flippaðar. Rut hitti vin sinn hann Ingó idol og voru hún og Bogga duglegar að rugla í honum. Ég og Rut tókum vanaföstu myndasyrpuna með fólkinu á staðnum. Á endanum týndist Rut þannig við urðum þá þrjár ég, Bogga og Sigrún. Bogga var orðinn soldið vel drukkin þannig ég og Sigrún þurftum að aðstoða hana niður Laugarveginn. Við fengum okkur að borða og Sigrún missti hálfa vöflu niður á sig með rjóma og súkkulaði og öllu, he he hún var vel skreytt þá. Síðan kíktum við inná Pravda í smástund og síðan haldið heim.

Ég vaknaði um tólf, ég og Rut fórum á dominos og tókum með okkur heim í Grindó, skelltum mynd í tækið og úðuðum í okkur pízzu og nammi. Við skelltum okkur síðan í heitan pottinn og vorum þar í tvo góða tíma.

Geggjuð mynd!! Ekkert smá sætar :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 15:20:55 / gb.is

chill chill

Ég er búin að vera voða róleg þessa vikuna. Á föstudaginn fór ég heim til Gest og Lindu að horfa á idol, fór svo bara að horfa á tónleika með Robbie og U2.

Á laugardaginn átti Jóna Rúna afmæli og kíkti ég á afmælisbarnið í heitan rétt, kökur, súkkulaði og ís:haha: ummmm...alltof gott. Síðan var skellt sér í vinnuna og heim í sturtu. Ég var í engu stuði um kvöldið og nennti ekki neinu. Jóna og Brynhildur komu um tólf og tóku mig með sér út. Við kíktum á Láka en þar var enginn stemmning þannig við kíktum heim til Hrafnhildar sem var að halda uppá tvítugsafmælið sitt. Þar var Skutla og Katla og voru þær léttgeggjaðar, Rut var að sleikja alla hægri og vinstri og Katla var að hugsa um hann Lalla sinn. Ég nennti ekki að vera þarna þannig ég kíkti í Kef á Rakel en var ekki lengi því það var ekkert af fólki að djamma sem að maður þekkir og Rakel fór líka snemma heim. Ég kom við á Láka leiðinni heim og þar var glatt á hjalla, allir voru vel í glasi og Rut var í góðum gír og gerði allt crasy:$

Á sunnudaginn fóru ég, Rut og ;) á Rent og veit ég ekki alveg hvernig mér fannst hún, er ekki alveg búin að ákveða mig.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 21:21:08 / gb.is

....

Vikan var bara eins og vanalega, skóli, vinna og læra. Á föstudaginn var ég að kléprast heima:frown:, mig kitlaði í fingurna mér langaði svo í bjór en það var enginn til staðar að fá sér bjór með mér þannig það var bara labbað í Aðalvideo og leigt sér eina mynd:frown:

Á laugardeginum byrjaði ég daginn á að fara í leikhús með barnabókmenntum á Ronju Ræningjadóttur, þetta var hundleiðinlegt leikrit:!: Ég var að berjast við að halda augunum opnum8| Þegar ég kom heim fór að reyna að redda mér fari á Borganes, Rakel, Guðni, Siddi, Sveinbjörn og Baldvin voru á Svignaskarði í bústað og langaði mig alveg hryllilega að kíkja á þau. Rakel vildi líka endilega fá mig því hún var ein þarna með strákunum. Klukkan varð sex og enginn gat skutlað mér, ég hringdi þá í hann faðir minn og tékkaði hvort hann væri til... hann tók ekkert alltof vel í það. Eftir svona tíu mínútur hringir mamma og segjir mér bara að taka bílinn, hún er alltof góð... ég var ekki lengi að koma mér út. Þegar ég kom upp í bústað var farið beint í pottinn og er það stórhættulegt að drekka í heitu vatni því ég varð soldið mikið söguleg. Tók þrenn video og man ég voðalega lítið eftir því sem skeði á þeim, þetta var samt helvíti gaman.

Á sunnudeginum var ég ekkert voða þunn, var reyndar með dúndrandi hausverk. Þegar ég kom heim var klárað heimalærdóminn og síðan beynt uppí rúm, ég var vel þreytt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 13:10:43 / gb.is

Whazzzup

Jæja, ein önnur vikan liðin, gerði sama sem ekki neitt, var nefnilega lasin. Ég ætlaði að vera voða þæg yfir helgina og ná þessari pest almennilega úr mér, en þá hringdi skutla í mig kl: 21:00 á laugardaginn og sagði að Gústa og Katla væru að fara í bæin og hvort við ættum ekki að fara með. Ég stóðst ekki mátið og skellti mér í sturtu. Við hittumst síðan allar heima hjá Rut, fórum í drykkjuleiki og urðum alveg vel í því. Guðrún Ásta var að keyra og sat þarna með okkur heiftarlega edrú, veit ekki hvort að henni hafi fundist þetta gaman. Á leiðinni í bæinn misstum við okkur með myndavélinna og símana, á nokkur góð vídjó sem að ég vildi að ég gæti deilt með ykkur en ég kann ekki að setja það á netið. Vorum nefnilega að hlusta á Sylvíu Night á leiðinni. Þurftum við að fara niður í Hafnafjörð að ná í Thelmu og var þá Guðrún ásta tekin af löggunni fyrir of hraðann akstur og var ekki með ökuskírteinið sitt. Það var soldið fyndið að sjá okkur hin fíflin í bílnum að reyna að fela vínið og act natural.:lol:

Þegar við komum niður í bæ loksins, þá byrjuðum við í gítar stemmingunni á Ara þar sem við hittum Brynhildi og Lindu, og fórum svo á Oliver að hitta Bjarna Rúnar. Þar var hundleiðinlegt eins og vanalega, þannig við færðum okkur yfiir á Hverfis þar sem ég og Rut misstum okkur aftur með myndavélina. Við gripum bara í næsta mann og létum taka mynd af okkur með honum, geggjað gaman, helvíti skemmtilegar myndir, er búin að setja þær inn. Sá siðan Rut Ingó úr idolinu og breyttist í grúppíu, sama með Gilzenegger sem við hittum fyrir utan en hann vildi ekkert tala við hana:lol: Það tók okkur svona klukkutíma fara út af Hverfis, því Rut fann alltaf einhvern að tala við, og svo tók annar klukkutíminn við að bíða í taxaröðinni, og það í grennjandi rigningu. Við vorum ekki komnar heim fyrr en kl: 08:00.

Á sunnudeginum gerði ég ekki neitt, lá bara heima í leti og var dunda mér að setja myndirnar inn. Var eiginlega ekkert þunn bara drullu þreytt.


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 12:42:26 / gb.is

blee

Geggjuð helgi liðinn, gerði reyndar ekkert á föstudeginum en á laugardaginn var farið á Grindó vs Kef í  höllinni, auðvitað unnum við, bikarmeistarar!!!! Góð byrjun á deginum. Siðan var bara brunað heim í sturtu og heim til Þormars í Staffapartý hjá Mamma Mía. Ég held að það hafi verið eitthvað í bjórnum hjá honum Þormari, því þegar það var búið að tilkynna að Sylvía Night, skiluru, hafi unnið þá voru allir orðnir vel blekaðir. Óskar komst ekki einu sinni á ballið, hann drapst í hraðbankanum og löggan þurfti að hyrða hann upp, greyið he he:lol:

Ég og Skutla fórum á ballið í svona hálftíma, nenntum ekki að vera þarna, þannig við keyrðum í Kef, pikkuðum Beggu uppí og drifum okkur borgina. Þegar við komum niður í bæ hefði mátt halda að það væri menningarnótt því það var gjörsamlega troðið. Maður þurfti að bíða í minnsta lagi í hálftíma í röð, Bjarni Rúnar gat ekki einu sinni reddað okkur inn og hann þekkir alla dyraverði í bænum. Þegar klukkan var orðin þrjú var mín orðinn alltof drukkin, var á því að drepast á Laugarveginum, þannig stelpurnar náðu í taxa fyrir mig og fór beinustu leið uppí íbúð. Klukkan hálf sjö komu stelpurnar heim, ég þurfti að hleypa þeim en ég átti í pínu erfiðleikum með það því ég var ennþá blindfull, jesus bobby?

Á sunnudeginum fóru ég og Rut í lónið, það er ekkert smá gott að fara ofan í lónið drulluþunnur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2